Lífið og tilveran
19.07.2007 14:59:43 / skvisi

Í sól og hita

Nú sit ég hér inn á hotel herbergi hér í fallegri borg að nafni Róm...ég er inni að kæla mig niður og áhvað að henda inn hér nokkrum línum ;) það er ca 32° hiti og glampandi sól. Frekar heit fyrir mig...kannski því maður er ekki vanur svona hita en þetta venst, maður leitar bara skjóls frá sólinni inn í niður kældum búðum ;) Þetta er í fyrsta skipi sem pabbi kvetur okkur til að vera inn í búðum þegar við erum í útlaöndum og er hann mjög sáttu þegar við dettum niður á góða búð sem við erum lengi í..hehehe hann er ekki alveg að meika sólina gamli kallinn:lol:

En ég ætla að hafa þetta gott í bili ætla að skella mér út í sólina aftur

kveðja fá River Palace Hotels í Rómarborg

Bergdís


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 13:24:11 / skvisi

Sól og bara gleði

Jæja ég er búin að vera voð löt að blogga :| enda á maður ekki að hanga inni í svona góðu veðri og þegar maður er í sumarfríi ;) en það er voða lítið að frétta eins og ég sagði áðan er ég bara búin að vera úti að njóta veðursins með vinum og fjölskyldu búin að fara í margar sundferðir og sólböð. Ég reyndar málaði herbergið mitt...eða pabbi málaði og ég hjálpaði til ;)

En svo styttist í Rómarferðina miklu :haha: allir hér heima orðnir voða spenntir...ég er reyndar ekkert að átta mig á því að ég sé að fara út :$ ég held að ég vilji ekkert hugsa voða mikið um það því mér finnst svo leiðinlegt að fluga því ég fæ alltaf svo mikinn svima og liður bara illa :( en ég vona að þetta reddist ég reyni bara að sofa.

En jæja ég ætla að fara að koma mér út í sólina með Tuma minn, við ætlum að setjast í sólbað og biða eftir Baldri ;)

Skrifa meira seinna

Sólarkveðja Bergdís


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 21:25:53 / skvisi

Jæja þá....

Í gær fékk ég að vita að umsóknin mín í Kennaraháskóla Íslands hefði verðið samþykkt :haha: og þýðir það að ég er að fara í KHÍ í haust 8| það var ekki alveg á planinu, bjóst ekki við að komast inn...en ég er bara svo heppinn :$ ég er allavega rosalega ánægð með þetta og get ekki beðið eftir að byrja ;):haha:

Þetta breytir ýmsu eins og til dæmis verð ég að hætta í vinnunni minni sem mér finnst geggjað leiðinlegt :( vildi að ég gæti verið að vinna og í skólanum en það er víst allt of mikið fyrir mig. Langar sko ekkert að hætta það er svo gaman í vinnunni og ég elska þennan stað svo mikið :cry: hehe kannski finnst ykkur skrítið að tala svona um vinnunna sína en þetta er satt þetta er besti vinnu staður í heimi frábært fólk sem maður vinnur með, frábær andi í húsinu, faglegt og gott starf og auðvitað frábærir krakkar sem gefa manni nýtt og spennandi viðfangsefni á hverjum degi til að vinna með...allt æðislegt. Ég á örugglega eftir að koma þanngað aftur til að vinna.

En svo er ég hætt í sumarskólanum ;) nennti ekki að vera í honum fyrst ég er komin inn í KHÍ. Ætla bara að njótta þess að vera í frí í sumar...eða 9. júlí geri ég það þá er ég komin í sumarfrí ;)

En ég ætla að segja þetta gott

kv. Bergdís háskóla gella :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 19:43:47 / skvisi

Allt og ekkert...

Það er alveg ótrúlega leiðinlegt að vera í skóla á sumrinn :evil: ég er ekki að nenna þessu þetta tekur allt of mikin tíma. Ég nenni ekki að sitja inn í góðu veðri og læra þegar allir aðrir eru að fara í sund og gera eitthvað skemmtó :( en ég valdi mér þetta víst :whut: ég ætla allvega ekki að gera þetta aftur eða ég vona að ég þurfi ekki að gera þetta aftur.

En nóg um eitthvað tuð í mér :$ ég segi annars voða lítið, er bara að njóta lífsins og hafa gaman (svona inn á milli vinnu og skóla) ég er alvarlega farin að hlakka til að fara í sumarfrí, alveg komin tími á það, komin með smá leið í vinnunni. Þannig að það verður gott að komast í frí ;)

Ég er svo að auglýsa eftir fólki sem vill koma í útilegu með mér í sumar langar svo geggjað mikið...ætla að reyna að fá stelpunar til að skipuleggja eitthvað með mér þegar við erum komnar í frí það væri allavega geggjað gaman :haha: hvernig lýst ykkur á það Efstahjalla stelpur?? Eru þið ekki til í eitthvað ferðalag ;)

En jæja ætla ekki að hafa þetta lengra í bili...bara svona á láta vita af mér ;)

Kv. Bergdís


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 22:50:19 / skvisi

Nýr bíll, fjarnám og ferðalög...

Það er sko allt að ské hjá mér þessa daganna enda er ég mjög þreytt :|

En þannig standa málinn að ég er byrjuð í sumarfjarnámi :S ekkert voða gaman en eitthvað sem ég þarf að gera er að flýta fyrir minni skólagöngu ;) ég er að taka stærðfræði og félagsfræði þannig að það verður mikiða að gera hjá mér í sumar 8| svo var ég að kaupa mér nýjan bíl :D sem er alveg geggjað flottur þetta er Getz og steingrár algjör pæju bíll ;) rosalega ánægp með hann ;) ....og svo er eitt í viðbót ég er að fara til Róm 17 júlí :D er að fara með fjölskyldunni og við verðum í viku á geggjað flottu hoteli...ég hef aldrei verið á hoteli í útlöndum þannig að ég er geggjað spennt :D hlakka ekkert smá til.

Það verður sko nóg að gera í sumar hjá mér :D skóli, útlönd og runta á flotta bílnum ;)

Kveð að sinni Bergdís á flotta bílnum...hehehe:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.06.2007 20:27:29 / skvisi

Svona hitt og þetta....

Jæja þá er komin ein önnur helgi...sem er reyndar bara mjög fínt :D en vikurnar líða víst hratt ef það er gaman hjá manni...og það er alltaf gaman hjá mér ;) en já það er voða lítið að frétta af mér nema að ég er að fara að kaupa mér bíl nýjan bíl ætla að kaupa mér glænýjan Hyundai Getz steingráann á litinn :D ég fæ hann reyndar ekkert fyrr en á þriðjudag eða miðvikudag. Eini ókosturinn við að ég er að fara að kaupa mér nýjan bíl er að þurfa að selja litla fallega bíllinn minn :( langar ekkert að láta hann fara en ég verð að gera það núna ef ég ætla að fá eitthvað fyrir hann. En maður verður víst að vera til búin að breyta til svona stundum.

En ég hef svo sem ekkert að segja er bara að blogga fyrir hana Maríu mína fyrst hún vill lesa það sem ég skrifa :$ hehehe. 

En ég ætla bara að hafa þetta fínt í bili skrifa vonandi eitthvað með viti fljótlega...ætla að fara að taka mig til ætla að kíkja til Maríu og kannski í bærinn ;)

kv. Bergdís


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 21:28:06 / skvisi

Sjörnuspár

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Hafðu hugfast næstu vikur að þér er eðlislægt að vinna bug á hindrunum og erfiðleikum. Ef þú nærð ekki að klára verkefni þessa dagana er það eflaust vegna þess að þú sérhæfir þig ekki. Lærðu að láta tilfinningar þínar betur í ljós og sjá, þú átt samúð og skilning þeirra sem elska þig og virða. Stjarna sporðdrekans birtist skapandi og auðug hér

Þetta er stjörnuspáin mín í dag ég náði í hana á www.spamadur.is . Ég les stjörnuspána mína á hverjum degi :$ ég hef í huga hvað stendur í henni og ef hún er að reyna að gefa einhver ráð hugsa ég um þau og reyni að gera eitthvað í málunum. ;)Ég les stjörnuspár þeirra sem standa mér næst....Mér finnst mjög gaman að spá í þessu;). Sumum finnst ég ótrúlega skrítin að lesa þetta alltaf og hvað þá taka mark á þessu. En þetta er bara eitthvað sem mér finnst gaman að ;)

Ég var að lesa á vísindarvefnum um stjörnufræði og stjörnuspeki og það var mjög gaman að lesa það endilega kíkiði á það hér ;)

kv. Bergdís stjörnuspekingur :$


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 20:28:07 / skvisi

Raunveruleikinn

Grátur, gleði, hamingja og ást. Reiði, depurð, sorg og óhamingju.

Við sköpum okkar eigin raunveruleika, okkar eigið líf. Hversu vel við notum lífið ákveðum við sjálf, auðvitað eru alltaf einhverjar hindranir sem geta truflað okkur á leið okkar að hamingjunni. Svo er spurning er til leið að hamingjunni? Er hamingjan ekki bara núið? Ég hugsa að það sé tímasóun að leita að hamingju, maður verður að skapa sér hana, líta á það sem meður hefur ekki á það sem maður getur haft seinna. Maður veit aldrei hvort það verði eitthvað seinna. Lifa er hamingja hvort sem þú ert ein/einn eða hefur einhvert til að deila lífinu með. Maður á að nýta tækifærin sem verða á vegi manns, og nota öll tækifæri og atburði hvort sem þeir eru góðir eða slæmir og læra af þeim nota þá til að öðlast þessa hamingju sem við sækjum öll eftir. Við verðum að læra að nota alla þá hluti sem koma fyrir okkur hvort þeir séu slæmir eða góðir, nota þá til að skapa okkur tækifæri til að þroska okkur sjálf, öðlast eitthvað sem okkur vantar andlega. Ég held að ef maður lítur björtum augum á lífið, framtíðina, þótt hún sýnist kannski ekkert svo björt þá líður manni betur og getur þá kannski fundið þessa birtu.

Ég veit svo sem að ég fer kannski ekki alveg eftir því sem ég er að skrifa hér en mig langar það og hef verið að gera það undanfarið og vona að ég geti haldið því áfram. Ég hef allavega lært á síðustu mánuðum að vera ánægð með sjálfan mig, standa stolt og sjálfstæð og líta á björtu hliðina. Reyna að vera jákvæð, reyna að sjá eitthvað fyndið eða skemmtilegt við lífið og tilveruna. Meta það sem ég hef, lifa hverjum degi vel.

Smá sýn inn í hugsanir mínar þessa daganna ;) Vonandi skilur einhver þetta...hehehe

kv.Bergdís


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 01:09:17 / skvisi

Hugsun...

Mér líður eins og ég sé inn í dimmu herbergi og það er búið að stilla mér upp við vegg. Allir horfa á mig og bíða eftir svari, svörum við spurningum sem dynja á mér, en ég svara engu. Það hlaðast á mig spurningar en það eru ekki til nein svör við þessum spurningum. Afhverju þetta en ekki hitt, hversvegna og hversvega ekki . Stundum langar mig að hoppa út fyrir lífsins ramma og geta skoðað líf mitt frá annara manna sjónarhorni. Hvað mundi ég sá? Mundi ég finna svör við spurningunum sem hertaka hugsun mína? Ég veit ekki hvað skal gera, hvað ég á að hugsa eða hvað ég á ekki að hugsa. Ég vildi að einhver gæti sagt mér hvað ég á að gera....því ég hef ekki hugmynd um það.


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 19:02:20 / skvisi

Sunnudagur...

Ég elska sunnudaga, þá er svo gott að vera bara heima og gera ekki neitt:D það er ég allavega búin að gera í dag, fór ekki einu sinni að klæða mig fyrr en hálf 6 hehe bara næs ;)

En jæja nóg með það....síðasta vika er nú búin að vera voða róleg hjá mér, það var opið hús í vinnunni hjá mér og það var rosalega gaman, krakkarnir voru með skemmti atriði og svo var myndlistarsýning. Þessir krakkar er svo duglegir og sætir, elska vinnunna mína ;) en svona í tilefni að opnu húsi fórum við 12 saman út að borða úr vinnunni, við fórum á Ask og var það bara æðislega gaman og fengum við rosalega góðan mat og frábæra þjónustu;) eftir matin skelltum við ungustelpurnar okkur í bæinn og tókum smá rölt og var dansað smá eins og venjulega og komið heim undir morgunn ;)

En jæja ég ætla bara að hafa þetta gott í bili :$ skrifa meira seinna

kv Bergdís ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 22:57:51 / skvisi

Helgin...

Góða kvöldið ;) jæja þá er helgin að verða búin og er ég búin að hafa það ágætt, skellti mér í bío á föstudaginn á Spiderman 3. Hún fær ekki góða dóma hjá mér :|þetta var svo sem ágættis afþreying en ekkert sem mig langar að sjá aftur, og ekki mynd sem maður verður að sjá í bío. Mér finnst hún frekar kjánaleg, ég er svo sem ekkert mikið fyrir Lóa (eins og Spiderman er þýddur yfir á góða Íslensku í myndinni) og hef svo sem ekkert pælt mikið í þessum myndum en ég hef séð hinar 2 og finnst þær miklu betri en þessi. En þetta er mín skoðunn ;)

Laugardagurinn var bara tekin í rólegur, kíkti í heimsokn til Berglindar systir og var svo tekið einn hring á kjötmarkaðnum ;) en það var nú ekkert spennó þar nema hann Hlynur minn, alltaf jafn sætur ;) hehe

Ég er búin að vera geggjað dugleg í dag :haha: fór með pabba í rúmfó og keyptum við skrifborð, skrifborðstól og hillur til að setja í herbergið mitt. Setum ég og pabbi þetta saman því við erum svo miklir snillingar og auðvitað gekk það ótrúlega vel ;) en svo var komið að því að setja hillurnar upp og voru þær teknar úr pakkningunum en viti minn voru þær ekki bara gallaðar :( þannig að við gátum ekki klárað þetta í dag :whut: ég hata svona og þær þurftu sko báðar að vera gallaður það var ekki bara ein...ooohhhhh þannig að við verður að fara að skila þeim á morgun og fá nýjar. Var að vonast til að geta klárað þetta í dag því það er vinna á morgun og starfsmanna fundur annaðkvöld, þannig að ég geri ekki mikið á morgun...en það þýðir víst ekki að gráta það :|

Ég var að spjalla við hana litlu systir mína áðan hún er að verða 13 í þessum mánuði og hún var að segja mér eins og oft áður að það væri aldrei neitt að gera...ég skil þetta ekki, hún á leikjatölvu, sjónvarp, dvd-spilara, fullt að myndum til að horfa á og fullt af leikjum til að spila en það er bara ekkert að gera 8| ekki átti ég þetta allt þegar ég var 13 ára en ég fann mér bara eitthvað að gera, maður hafði alltaf nóg fyrir stafni. Ég man eftir því að ég sat oft inn í herbergi að hlusta á tónlist og teikna eða eitthvað. Við vorum ekki með netið þegar ég var 13 ára og ég var að segja henni frá því og hún skilur bara ekki hvernig ég gat lifað svona henni finnst það alveg hræðilegt...hehehe. Æi mér finnst þetta bara svo fyndið. Það er eins og krakkar í dag kunni ekki að leika sér, kunna ekki að vera með sjálfum sér þurfa alltaf einhvern annann til að vera með. Maður er meiri segja hættur að sjá krakka út í leikjum það er eins og enginn nenni að vera úti að leika sér...þegar það fór að hlýna og sólin fór að vera lengur á lofti þá var maður bara úti alveg þanngað til maður fór að sofa. Veit ekki hvað er að koma fyrir krakka nú til dags :whut:

En jæja ég ætla ekkert að vera að hafa þetta lengra í kvöld, hætta áður en ég missi mig alveg...hehe

Góða nótt

kv. Bergdís


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 22:00:52 / skvisi

3.maí

Jæja þá er skólinn búinn og það er bara verið að vinna þessa daganna...ég veit ekkert hvað ég á að gera af mér þegar ég er búin í vinnunni á daginn8| eins og í dag var ég búin hálf 4 og ég fór bara heim að gera ekki neitt...ég vil ekki nýta daginn í svoleiðis en ég veit samt ekkert hvað mig langar að gera :whut: en ég ætla nú að reyna að skella mér út að hjóla eða í sund þegar ég er búin að vinna á morgun, ef það er gott veður ;)

Svo vil ég óska henni Ásdísi systir til hamingju með afmælið þessi skvísa er 19 ára í dag ;) til hamingju snúlla mín =c*

En hér er eitt í lokinn ég var að skoða www.ljod.is og rakst á þetta ljóð, þetta er ljóð dagsins og mér fannst það svo flott að ég verð að setja það hérna inn.

kv. Bergdís

5 og1/2 árs

 

fastur við gluggann
með hönd undir kinn
beinir hann sjónum
aftur og enn
langt út í alheimsins geim

í augunum tár
í brjóstinu þrá
hér aðeins hann
þar allt hitt

og náttmyrkrið sindrar
af stjörnuljósum
sem verða honum tákn
um fegurð og frið
þrátt fyrir allt
og fullkomið ævintýr

því hér - einmitt nú
í þessari andrá
opnast öll hlið
inn í ókunna vídd

þá lokar hann lófa
og strengir þess heit
að geyma það vel
að fela það hér
leyndarmál lífsins

því hann á það einn
- aðeins hann
og stjörnubjartur himinn







» 0 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 20:48:54 / skvisi

Farin að blogga....

Jæja þá lét ég til skarar skriða og ákvað að fara að blogg! Ég veit ekki hvernig þetta á eftir að ganga en það kemur í ljós ;)

Ég skellti mér á sálarball í gær á Broadway og var alveg hrikalega gaman :D það er rosalega langt síðan ég hef farið á sálarball og var búin að gleyma hvað þetta er gaman maður...svo þegar ballið var búið var skellt sér í bæinn og var alveg fullt af fólki i bænum...það var sko dansað af sér rassinn ;) ekkert smá gaman! En haldið var heim þreytt og búið að stiga nokkrum sinnum á lappirnar á manni upp um morgun ;) það er svo bara búið að taka því rólega í dag og gera ekki neitt 8| enda er maður búin í skólanum og svona ;) það er bara vinna sem er framundan í 3 daga og svo helgi...ætli maður endi ekki á djamminu á föstudaginn eða eitthvað ;) aldrei að vita....:haha:

En ég ætla ekki að hafa þessa fyrst færslu mína lengri í bili, ég reyni að skrifa eitthvað gáfulegt hér við tækifæri ;)

Kv. Bergdís


» 1 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
RSS tengill